15.05.2012 11:39
12 ára afmæli Eiríks
Hann Eiríkur varð 12 ára 20 mars sl. Ótrúlegt hvað tíminn flýgur og þetta var fjórða afmælið hans hér á Mýrarbrautinni. Fékk hann að taka upp nokkra pakka sem að biðu hans þegar að hann vaknaði og svo var það skólinn. Eftir skóla þá beið hans hér heima þessi fína afmæliskaka. Svo var haldið upp á afmælið hans viku síðar. Myndir í myndaalbúmi,,,
Spenntur !!
Ohhh.... eintómir mjúkir pakkar
Afmæliskaka
Afmælisveislan
14.05.2012 12:43
Húnvetnska liðakeppnin - Smali
Sem hluti af húnvetnsku liðakeppninni, þá er keppt í svokölluðum Smala, hvar riðið er milli stanga og alls konar fyrirstaða. Gefin eru stig fyrir að fella ekki neinar fyrirstöður sem og fyrir tíma. Kristján Ingi keppti í unglingaflokki á hestinum hennar mömmu sinnar honum Tvist og gekk þeim bara svona ljómandi vel og lentu í 3 sæti.. Myndir í albúmi





14.05.2012 12:23
Afmæli Kristjáns
Hann Kristján Ingi átti afmæli á dögunum og vildi hann ekkert halda sérstaklega upp á það en bauð ömmu sinni og afa á Húnsstöðum í mat. Var eldað þetta dýrindis lambalæri, úrbeinað með allskonar fyllingu og gúmmelaði.
19.04.2012 21:56
Húnvetnska liðakeppnin
Síðastliðin tvö eða þrjú ár hefur verið haldin hér svokölluð húnvetnska liðakeppni. Þá eru það 4 lið úr báðum sýslunum sem að keppa á milli sín á hestum. Einnig er þetta einstaklingskeppni þar sem að knaparnir safna stigum fyrir sín lið. Ég var beðinn um að aðstoða við það að ljósmynda auglýsingaefni og eins aðstoðaði ég við töku þessa meðfylgjandi myndbands sem er svo skemmtilegt.
Þessi mynd var aðallega notuð

19.04.2012 21:36
Fjölskylduþorrablót og fleira
Á þorranum skelltum við Elín okkur yfir flóann í fjölskylduþorrablót á Drangsnesi. Alltaf gaman að fara þangað og óvænt lentum við í þrítugsafmæli Öllu hans Halldórs Loga. Frábær helgi. Gistum hjá Dóra og Sunnu og höfðum svítuna í kjallaranum fyrir okkur. Fleiri myndir í albúminu.
Það er ómissandi að kíkja á hestana hans Frigga frænda
Afmælisbarnið hún Alla, alveg komin á steypirinn
Halldór Logi, Alla og skvísur
Mamma og Svana
Þvílík veisla ,,,,
Kaldur......
Flottir frændur
Parið,,
Gestgjafarnir og góður matur... ummm
19.04.2012 21:13
Árshátíð karlakórsins
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps hélt sína árshátíð á dögunum og við Elín skelltum okkur á hana að sjálfsögðu. Árshátíðin er liður í fjáröflun kórsins en nú á vordögumer stefnt á kóramót í Noregi. Haldið var pakkauppboð og svo var borðaður góður matur og dansað fram á nótt við tónlist frá Geirmundi Valtýssyni. Hér eru nokkrar myndir og svo eru fleiri í myndaalbúmi. Einnig er hér smá myndband frá kvöldinu góða.
Og sungið,,,
Helgi Páll og Hjálmar sungu tvísöng
Geirmundur spilaði undir fjöldasöng
Skálllll !!
19.04.2012 20:36
Þrettándagleði
Sú hefð hefur skapast í fjölskyldu Elínar að þar er haldin þrettándagleði ár hvert. Við höfum stundum farið en í ár þá fóru Elín og strákarnir. Allir koma með mat með sér og það er nóg að bíta og brenna. Svo kemur jólasveinninn og börnin fá pakka. Skemmtileg hefð. Fleiri myndir eru í albúminu.
Girnilegt hlaðborð
Ásta og Alice og Andri með skemmtiatriði
Dansað í kring um jólatréð
22.03.2012 12:54
Áramótin 2011 / 2012
Um áramótin vorum við bara tvö ein í kotinu skötuhjúin og bara rólegt og fínt. Bæði í fríi og kósý. Borðuðum góðan mat, fórum á áramótabrennuna og á flugeldasýninguna og svo hefðbundið, horft á annála og áramótaskaupið. Um miðnættið þá príluðum við upp á Skúlahorn og horfðum á miðnættið ganga í garð og nýtt ár 2012. Teknar voru myndir og vídéo. Fleiri myndir í albúmi... 
Áramótasteikin
Kveikt í brennunni
Bomburnar farnar að svífa

Svo má sjá hér að neðan smá myndband frá Skúlahorni. Best er að velja 720 punkta HD gæði í stillingum myndbandsins.
22.03.2012 12:28
Annar í jólum
Á annan í jólum skelltum við Elín og ormarnir okkur suður. Við vorum bæði komin í frí og ágætt að fara í smá ferðalag og rólegheit. 
Elín og Dagný systir hennar og svo Ásta mamma þeirra.
Veisla !
29.02.2012 21:26
Jóladagur 2011
Á jóladag komu þau Erling, Jóhanna og Binni í mat til okkar. Binni er kærastinn hennar Jóhönnu. Í matinn var hið hefðbundna hangiket frá SAH hér á Blönduósi sem að gerir besta hangikjöt og hamborgarhrygg í heimi. Svo þegar að leið á kvöldið var spilað og svo komu bræðurnir heim en þeir höfðu verið á Húnsstöðum. Þá var sko alvöru kvöldkaffi !!
Lagt á borð ummm.....
Hópmynd
Spilað í tölvuleik
Saddirrrr..................
Umm............. maður verður bara svangur
Bræður 3...... stór - stærri - stærstur
29.02.2012 20:59
Jólin 2011
Jólin komu og fóru eins og venjulega. Bjarni Freyr var hjá okkur yfir jólin og var gaman að því að hann skyldi sjá sér fært að skjótast upp á skerið yfir hátíðirnar en hann og Tinna kærastan hans eru í námi í Danmörku. Erling og Jóhanna komu svo til okkar á aðfangadagskvöld í kvöldkaffið. Fleiri myndir í albúminu.
Verið að leggja á borð
Það vantaði ekki pakkana undir tréð !
Allt klárt fyrir jólamatinn
Bjarni fékk möndlugjöfina
Eiríkur las á pakkana
Bræðurnir Kristján og Bjarni
Elín fékk úr frá kallinum
Eiríkur fékk Wii leikjatölvu
Elín og Jóhanna
Bjarni, Eiríkur og Erling í Wii tölvuleik
Katla og Freyja fengu líka jólapakka
29.02.2012 18:56
Jólatré og hundabað
Við Elín fórum samkvæmt venju í Gunnfríðarstaðarskóg og völdum okkur jólatré. Hjuggum það niður og tókum með heim eftir að búið var að greiða vægt gjald til Skógræktarfélagsins. Þetta er skemmtileg hefð. Endað er á því að borga fyrir tréð hjá Gunnu og Deddu og þegið súkkulaði og smákökur. Eftir að komið var heim, voru þær Katla og Freyja baðaðar fyrir jólin. Þær eru stundum tregar upp í baðkarið en svo finnst þeim þetta voða gott ![]()

Þetta fína jólatré
Og svo brosa.. Ingþór skógarvörður og Elín
Katla lúpuleg
Freyja í baðinu,,
30.01.2012 21:30
Árshátíð og jólahlaðborð
Í byrjun desember var haldin árshátíð hjá vinnunni hans Höskuldar þ.e.a.s. hjá sýslumannsembættinu á Blönduósi. Það eru um 50 manns með mökum. Gist var á Grand hótel og farið á jólahlaðborð á laugardagskvöldinu á hótelinu. Þar söng Helgi Björns og skemmti og svo var dansað með hljómsveitinni Hafrót á eftir. En þetta byrjaði allt saman með því að við mættum á föstudeginum og við vinnufélagarnir á neðstu hæðinni buðum konunum út að borða á veitingastaðinn Austur-indíafélagið og svo var farið á hótelbarinn á eftir. Á laugardeginum var óvissuferð í boði starfsmannafélagsins sem var þannig að það var farið út um aðaldyr hótelsins og inn um aðrar og upp á 3 hæð þar sem að boðið var upp á pizzur og freyðivín. Svo mætti þar leynigestur sem var hún Helga Braga leikkona og sú hristi aldeilis upp í liðinu
Um kvöldið var svo jólahlaðborðið eins og fyrr greinir. Fleiri myndir í albúmi.
Á austur-indíafélaginu. Frábær matur.
Gaman - gaman
Skál,,,,,,
Skemmtinefndin að störfum
Setið á hótelbarnum og spjallað
Óvissuferð,,,,,,,,,
Helga Braga er hress...
Maður er plataður í allskonar vitleysu ,,
Magadans....
Þessar sungu jólalög ,,
Helgi Björnss,, góður
Kallinn er góður..
Flott par

Þessi voru sko síðust upp,,,,,
27.01.2012 16:33
Síðasta helgi í rjúpnaveiði
Síðustu helgina í rjúpnaveiðitímabilinu fóru vinir mínir, þeir Jón Víðir og Jón Þór á Víðivelli í Staðardal. Þeir voru búnir að bjóða mér með sér en ég sagðist vera upptekinn í vinnu og kæmist ekki. Auðvitað skelltiu ég mér yfir flóann og vakti þá upp snemma á laugardagsmorgni og sagði þeim að hundskast á fætur og halda til veiða
Helgin var frábær, gott veður, góður matur, góður félagsskapur og hófleg veiði.
Í þessarri hlíð veiddum við flestar rjúpurnar þ.e.a.s. í heimalandi Víðivalla
Boggukot - þar er alltaf gott að vera
Ummm..... fyrsti forréttur,,,,, pylsur af öllum gerðum og ákavíti með. Frá vinstri,, Rúnar, Bjössi sonur Jóns Þórs og svo Jón Þór
Síldarréttir, heitreykt bleikja og fl. Meiri ákavíti og bjór
Og svo aðalrétturinn,,,,, villibráðarpottréttur og rauðvín með því
Saddur.....................
27.01.2012 16:18
Árshátíð Húnavallaskóla
Á haustdögum var árshátíð Húnavallaskóla haldin. Kristján er í 10 bekk og sá árgangur sér alltaf um leikrit og heppnaðist það bara mjög vel hjá þeim. Fleiri myndir eru í myndaalbúminu.
Kristján á gítarnum í miðjunni
Haukur í Hvammi
Hákon á Reykjum,,,,
Og Kristján aftur